Atburđarteljari

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Hugrún Pétursdóttir
  • Netfang: hugrun87@hotmail.com
  • Atvinna: Afgreiđsludama í Sportbć

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur

Muniđ ađ kvitta:) Alltaf gaman ađ sjá hverjir lesa:)

Könnun

Ćtti ég ađ skipta yfir í 123.is bloggsíđu??

Innskráningar kubbur

NÝ SÍĐA!!!!

31. október 2007 klukkan 23:36

ÉG ER KOMIN MEÐ NÝJA SÍÐU!!!!!!!

www.123.is/hugrunp

Hugrún Pétursdóttir
Engin athugasemd

Burgĺrdevej 1, Vinding Denmark til L-6969 OBERANVEN, 21 bei der Aarnescht

22. október 2007 klukkan 17:13

http://maps.google.com/maps?f=d&hl=en&geocode=&saddr=rue+notre+dame+luxembourg&daddr=luxembourg+lux&sll=49.609514,6.129459&sspn=0.005089,0.009978&ie=UTF8&z=13&om=1

Ótrúlega sniðug síða! Hófí sérðu hvað það er stutt á milli?? Hlæjandi
Frá húsinu hennar og að mínu húsi í Lúxemborg eru um 900 km:) hægt að sjá hvar á að beygja og hvað maður á að keyra marga km að næstu beygju!
Allt er nú tilGlottandi

Jæja annað bloggið á einum degi!!! Fær maður ekki kvitt fyrir það eða????Ullandi

HPet

Hugrún Pétursdóttir
4 athugasemdir

Alltaf styttist!

22. október 2007 klukkan 12:44
Heil og sæl!

Tíminn líður og líður og alltaf minnka dagarnir sem eftir eru á Íslandinu!
Í dag eru 15 dagar, rúmar 2 vikur semsagt og aðeins 2 helgar to goÓákveðinn Þær eru reyndar ekki fullskipulagðar ennþá svo að það verður að gerast fljótlega. Flugið mitt er beint til Lux og brottför 6 nóv kl 15:30.

En að öðru!

Var ótrúlega dugleg um helgina, að sletta úr klaufunum! Fór á föstud með Unni Lilju í Árhús og fengum okkur bjór hjá snilldarþjóninum AldísiGlottandi Héldum svo í þessa gífurlegu rúntmenningu á Hellunni og náðum við Þórarni með okkur á rúntinn! Fórum aðeins á Kanslarann og stelpurnar voru orðnar eitthvað lúnar og fóru heim og ég og strákarnir fórum á Selfoss á Kríuna! Ekki ein hræða þar inni svo að við stoppuðum nú ekki lengi. Enduðum í pulló þar sem millionarinn splæsti á kellunaUllandi Hann hefur nú gott af því! Honum var allavegna nær að vera að grobba sig af þessu! Hlæjandi

Á laug fórum við stöllur svo út á Rauðalæk til Pálma þar sem þeir Tóti töff og Siggi Fansý voru að sötra! Unnur fór fljótt heim og Masi keyrði okkur. Þeir fengu þessa ,,snilldar" hugmynd að fara á Útlagan, þar sem lokaði klukkan 1 en þeir trúðu því ekki fyrr en þangað var komið. Fórum þá í Þorlákshöfn á reiðhallarball. Þar var heljarinnar fjör! Við Aldís vorum komnar heim um hálf 6 DAUÐþreyttar. Vöknuðum nú reyndar aðeins þegar við sáum 2 hross á vappi hjá bakaríinu! hehehe

Dagurinn í gær einkenndist af leti sem er ágætt stundum... Unnur ætlaði nú að koma við áður en hún færi í bæinn en var svo mikið að drífa sig svo að hún náði ekki að kveðjaGráta

Setti inn nokkrar myndir frá Lux sem þau sendu mér. Shiva er múttan, Thierry pabbinn, Kian eldri strákurinn og Sam yngri.



Húsið mitt:) 

Svo er komin ný könnun! Og munið að kvitta:)
Hugrún kveður!Ullandi
Hugrún Pétursdóttir
2 athugasemdir

12. október 2007 klukkan 13:16

Jæja þá er ég komin með heimilisfangið mitt:) Þetta er allt að gerast! Enda bara 25 dagarGlottandi
L-6969 OBERANVEN

21 bei der Aarnescht
Luxembourg
Hér mun ég semsagt búa næstu 6 mánuðina! Endilega sendiði bréf eða eitthvað skemmtóHlæjandi
Síðan sagði Thierry mér að við værum að fara til Sharm El Sheik í Egyptalandi! Get ekki ímyndað mér hvernig það er þar! Sé bara pýramída, eyðimerkur og eitthvað fyrir mér ! hehe

Ströndin í Sharm El Sheik
Þetta er lítur allavegna ekkert illa út;)


Smá dæmisaga að lokumHlæjandi

þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur.Faðir hans gaf honum naglapakka  og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins. Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið.
Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minkaði dag frá degi.Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu,en að negla alla þessa nagla í girðinguna.
Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér.Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu.
Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.Faðirinn tók son sinn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu.Þú hefur staðið þig með prýði, en sjáðu öll götin á grindverkinu.Það verður aldrei aftur eins og það var áður,þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar,örin eru þarna samt áfram.Ör sem orð skilja eftir sig, geta verið jafnslæm og líkamleg ör. Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar.Þeir hlusta á þig,skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér.Sýndu vinum þínum hve mikils þú metur þá.Og fyrirgefðu mér ef ég hef skilið eftir göt í grindverkinu þínu.

Hugrún

Hugrún Pétursdóttir
14 athugasemdir

26 dagar....

11. október 2007 klukkan 09:18
Velkomin/n um borð. Þetta er farmiðinn þinn
 
            
Hugrún Pétursdóttir ( Kona)
   




 
 AfangastaðurDagsetningFlugnúmerBrottförKomaSætiFargjald
 
 Reykjavik KEF - Luxemburg LUXÞri 11/6/2007FHE94415:3019:50 8,850.00 ISK
 
 Skattar og aðrar greiðslur4,195.00 ISK
 
 Forfallatrygging, 950.00 ISK á flug950.00 ISK

 

  Samtals13,995.00  ISK

Hólí mólí! Ekkert smá stutt þangað til plús það að tíminn er endalaust fljótur að líða! Óákveðinn

26 dagar!!!

KV.

Hugrún
Hugrún Pétursdóttir
5 athugasemdir

Weelll ó well

09. október 2007 klukkan 15:46
Nú er komið að því góðir hálsar!!

Ég fer til Luxemburgar þann 6.nóvember næstkomandi og mun dvelja þar í 6 mánuðiHlæjandi
Að passa 2 stráka, einn 5 ára og einn 1 árs:) Bara dúllur! Þau eru bæði lögfræðingar og búa í svaka flottu húsi:) Eg mun svo fara á frönskunámskeið og svonna:)

Hjördís er strax farin að pæla í heimsókn og líst mér nú heldur betur á það! Hún er að spá í að koma í byrjun desember því hún á flugpunkta sem fyrnast um áramót svo að það er jafngott að nýta þáSvalur SigHauk frændi hringdi áðan og ég sagði honum frá þessu og hann sagðist líka eiga punkta svo að kanski kemur hann bara með líkaGlottandi Það væri allavegna mjög gaman að fá þau svona rétt fyrir jól líka því að ég fer til Egyptalands með nýju fjölskyldunni yfir jólin! Hljómar soldið spennóSvalur 

Skal vera voða dúleg að blogga á meðan þessu stendur! Það er þá eins gott að kvittin aukist!!!! Glottandi

Á bientót!

Hugrún
Hugrún Pétursdóttir
10 athugasemdir

Hrökkva eđa stökkva????

07. október 2007 klukkan 23:47

Nú er það bara hrökkva eða stökkva!
Tjaaa bara stökkva!

Hugrún Pétursdóttir
6 athugasemdir

Útlönd....

18. september 2007 klukkan 22:09
Var að fá bækling sendan frá don Quijote spænskuskóla! Hægt að velja um fullt af borgum á Spáni og í Suður Ameríku í Argentínu, Costa Rica, Cuba og Mexico.. Mexico heillar mig svakalegaSvalur En líka nokkrar borgir á Spáni eins og Tenerife, Barcelona, Madrid og svo eru líka litlar borgir sem er líka kanski bara sniðugt:) Maður er svo mikill smáborgari:þ

Þetta er svakalega spennandi og núna er ég sko til í þetta! Margir sem segja samt: ,,og hvað ætlaru að gera þangað? Til hvers?"  ég spyr nú bara til hvers að hanga hér?!? Það er ekkert sem heldur mér hérna..! Auðvitað fjölskyldan og vinirnir en meðan maður er makalaus og barnlaus þá held ég að það sé nú í lagi að gera eitthvað öðruvísi! Held að allir hafi gott af einhverju svona, það reynir nú stundum svolítið á að búa í svona litlu samfélagiUllandi Þetta er líka ótrúlega gaman, segja allir sem hafa gert eitthvað svona, að kynnast nýju fólki, öðruvísi menningu, sjá heiminn í öðru ljósi og svo framvegisBrosandi

Kanski er líka alveg eins gott og skemmtilegt að fara sem au-pair.. Kanski ekki alveg jafn dýrt heldurSvalur

Þetta kemur allt í ljós, ekkert stressGlottandi

Ein mynd frá Turkey Purkey:þ

Seljalandsfoss og HogránHlæjandi hahahhha


Hugrún Péturs
Hugrún Pétursdóttir
9 athugasemdir

Njú fótos!

13. september 2007 klukkan 23:35

Nýjar myndir á

www.public.fotki.com/hugrunp

Mæli einnig með að þið skoðið þetta fína slide-show sem ég gerði í gær inn á

www.myspace.com/hugrunp


Kommentiði svo!! þið eruð glööööötuðHissa

Hugrún PétursSvalur

Hugrún Pétursdóttir
Engin athugasemd

Sömmer of sixtí nćn...

11. september 2007 klukkan 21:43

Heldur langt síðan síðast! Ýmislegt gerst síðan þá;) Þjóðhátíð, Töðugjöld, afmæli og hitt og þetta! Glottandi

Þjóðhátíð var í einu orði æðisleg! Þetta er alltaf jafn gaman og ég held að maður verði hreinlega aldrei of gamall til að fara því þetta verður skemmtilegra með hverju árinu:)

Stelpurnar voru svo svæsnar að þær vöktu mig einn laugardagsmorguninn kl 7:00 að staðartíma og ráku mig út í náttfötunum. Voru búnar að fá húslykla hjá brýninu og ruddust inn og fundu allt mitt dót til og ég steinsofandiUllandi Ég fékk ekkert að vita hvert ferðinni var heitið en fyrsta stopp var morgunmatur í N1 á Selfossi. Það var skellt á mig kórónu og fékk þetta fína kókoshnetuglas:D Keyrðum til Reykjavíkur og þar var bundið fyrir augun á mér og þegar ég fékk að kíkja vorum við staddar í Bláa Lóninu. Þar spókuðum við okkur um í dálítinn tíma og þegar við vorum komnar uppúr var ég látin fara í bláan síðkjól, skærbleika skó með kórónuna. Þegar við löbbuðum út horfðu allir voða mikið og fólk var að taka myndir og ég veit ekki hvað og hvað... Skunduðum aftur í borg óttans og þar vorum við sólveig sendar inn í húsgagnahöllina. Vorum þar heillengi og þegar við fengum að fara út, voru Aldís og Brynja búnar að skreyta bílinn svaka fínt:) fórum svo á Gay Pride. Verð að viðurkenna að mér leið aðeins betur þar, því þar var ég allavegna ekki sú eina asnalega klædd;p Stúlkurnar voru voðalega góðar og keyptu gay pride fána og hálsmenn svo að ekki var það til að bæta útlitið! Eftir gönguna fórum við austur og Brynja sagði á leiðinni: jæja nú er þetta óvænta búið og við ákváðum að fara á ball um kvöldið í Þorlákshöfn og vorum búnar að finna driver og alles! Svo dottuðum við Aldís í smá stund heima og Brynja og Sólveig voru óvenju lengi að ná í eina pizzu og spurði ég mikið út í það en alltaf höfðu þær svör og sögðu að ég hefði ekkert sofið svona lengi eins og ég hélt...

Þegar allar vorum við tilbúnar og driverinn mættur var aftur bundið fyrir augun á mér.. Keyrðum við upp hóla og hæðir og enduðum við árbakkann þar sem þær voru búnar að plana óvænt afmælispartý! Þetta var heldur betur óvænt og ég fattaði ekkert og var svo græn á allt saman! en það var bara gaman og ég á eftir að muna lengi eftir þessu afmæli:)

Er núna að vinna á Selfossi sem er fínt.. Sennilega ekkert betra að hafa hér allavegna. Er með það á heilanum núna að fara eitthvað út að vinna eða í skóla, veit ekki hvert, hvað eða hvenær:þ er voðallega ákveðin, hjálp vel þeginHlæjandi

Jæja best að fara að skoða skóla í ókunnugum og fjarlægum löndumSvalur

Hugrún Péturs.....

Hugrún Pétursdóttir
2 athugasemdir